Þessi flík er væntanleg í júlí 2021.
Síðerma samfestingur hannaður sérstaklega fyrir keppni í tímatöku. Þetta er einhver allra hraðskreiðasta flík sem er hægt að vera í á hjóli, enda búið að þróa hana með einhverju sterkasta hjólreiðafólki heims. Athugið að engir vasar eru á bakinu á þessari flík (enda ætti enginn að vera troða í sig Snickers í miðri tímatöku keppni).
Að minnsta kosti 5 einstaklingar af sama kyni þurfa að panta þessa flík til þess að hægt sé að setja hana í framleiðslu.